lengd þingfundar.
Ég bið hæstv. forseta að velta því fyrir sér hvort þessi tillaga sé til bóta því að eins og stofnað var til þessa máls þá gefur hæstv. utanríkisráðherra og ríkisstjórnin til kynna að þeim þætti æskilegt að sem minnst umræða færi fram um málið og sú umræða sem þyrfti að vera færi helst fram þegar enginn er að fylgjast með henni, m.a. í sumar þegar fólk vill yfirleitt vera í fríi frá stjórnmálaumræðu. Jafnframt hefur komið á daginn að þingsköp hafi ekki verið virt af hálfu hæstv. utanríkisráðherra og þá teldi ég æskilegt að hæstv. forseti leitaðist við að miðla málum fremur en að lengja umræðu án þess að skorið sé úr um grundvallaratriði á borð við virðingu fyrir þingsköpum.