lengd þingfundar.
Virðulegur forseti. Vegna þessarar athugasemdar hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, vil ég koma hér og gera grein fyrir því að Miðflokkurinn styður ekki að þessu sinni lengd þingfundar með þeim rökum sem nefndur hv. þingmaður fór yfir. Það er eðlilegt að þetta mál fái umræðu í björtu, ekki fram á kvöld, og það er engin ástæða til þess. Ég hygg að á morgun standi þingfundur fram á kvöld eins og þingskapalög gera ráð fyrir að heimilt sé, en ég tel ekki ástæðu til þess á þessum tímapunkti að óska eftir lengri þingfundi í þessu máli. Ég vænti þess að allir þingmenn og hæstv. ráðherrar séu sammála um það að málið fái hér ítarlega umfjöllun og að allir þingmenn muni taka til máls. Það er enginn þannig asi á málinu, þó að vissulega sé kveðið á um dagsetningu í ágúst, (Forseti hringir.) það eru enn þá nokkrir þingfundadagar til stefnu.