brot á þingskapalögum.
Frú forseti. Mig langar að gera a.m.k. eina tilraun enn til að biðla til hæstv. forseta um að bregðast við þeim alvarlegu athugasemdum sem hér hafa komið fram um brot hæstv. utanríkisráðherra og fyrir vikið ríkisstjórnarinnar á þingskapalögum. Ég vil reyndar hrósa hæstv. forseta fyrir að hafa gripið inn í umræðu um fundarstjórn forseta áðan þegar menn voru farnir að ræða efnisatriði máls og reyndar komnir langt út í móa með það eins og þegar hv. þm. Grétar Mar Jónsson fullyrti að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af áformum hv. þingflokksformanns Samfylkingarinnar með því að semja um uppsjávarveiðar af því að við höfum hvort eð samið alltaf um þær. En málið var það, eins og hæstv. forseti hefði mátt benda á, að tillaga hv. þingflokksformanns Samfylkingarinnar fól það í sér að við semdum fyrst við Evrópusambandið og svo semdi það fyrir okkur. Þetta er bara til marks um þá óreiðu, upplýsingaóreiðu, sem enn er ríkjandi í þessu máli og áminning um mikilvægi þess að hæstv. forseti (Forseti hringir.) bregðist við þeim athugasemdum sem fram hafa komið um það hvernig hæstv. ríkisstjórn hefur nálgast þingið í þessu máli.