157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:10]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir stjórnartillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Með tillögunni er lagt til að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram 29. ágúst næstkomandi. Þar er einnig tilgreind sú spurning sem lagt er til að þjóðin okkar taki afstöðu til. Hún yrði eftirfarandi: Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Svarmöguleikarnir verða þessir:

„Já, halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“

Nei, ekki halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu.“

Virðulegi forseti. Allt frá því að viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu voru stöðvaðar árið 2013 hefur það verið bjargföst afstaða mín að þjóðin eigi að ákveða hvort viðræðunum skuli haldið áfram og nú þegar ég mæli fyrir þessari tillögu erum við skrefi nær því markmiði.

Þegar á móti blæs þarf að halda haus og leggja ískalt mat á hagsmuni þjóðarinnar okkar og stöðu Íslands, ekki síst þá valkosti sem eru í boði. Það þarf ekki að liggja yfir fréttaflutningi til að sjá að uppi eru viðsjárverðir tímar í alþjóðakerfinu. Alþjóðasamstarf á undir högg að sækja. Samskipti ríkja sem byggja á virðingu fyrir grunngildum, mannréttindum og sameiginlegum reglum alþjóðalaga eru ekki jafn sjálfsögð og áður og verndarhyggja hefur aukist í alþjóðaviðskiptum. Umtalsverð hætta er á að aflsmunir ráði í auknum mæli úrslitum í samskiptum ríkja og ríkjahópa. Þeir stóru munu ráða. Sú heimsmynd sem við höfum vanist er raunar gjörbreytt. Tollum er skellt á án fyrirvara, jafnvel af vinum. Viðskipti eru vopnvædd og friðhelgi landamæra virt að vettugi.

Í nýlegri ræðu Marks Carneys, forsætisráðherra Kanada, sagði hann að við þessar aðstæður þyrftu miðlungsstór ríki að vinna saman til að styrkja stöðu sína í heimi stórveldanna. Við hljótum að spyrja okkur hver sé þá staða lítils ríkis eins og Íslands. Hvernig tryggjum við stöðu okkar Íslendinga, frelsi okkar og fullveldi í þessum breytta heimi? Sumir hafa stigið fram og sagt að nú sé baráttan hafin um framtíð Íslands og fullveldi þess. Því er ég bara hjartanlega sammála. Það að leyfa íslensku þjóðinni sjálfri að taka ákvörðun um framtíð landsins okkar er sannarlega fullveldismál, samráð sem er í lagi. Því hefur einnig verið fleygt að nú þurfum við að liggja lágt eða þóknast öðrum. Mér finnst lítið fullveldi fólgið í þeirri afstöðu, hvað þá sjálfstæði.

Virðulegur forseti. Íslendingar hafa áður staðið á tímamótum í alþjóðasamskiptum. Í kjölfar seinni heimsstyrjaldar stóðum við frammi fyrir þeirri spurningu hvernig ætti að tryggja varnir okkar. Þá höfðum við hugrekki og framsýni til að gerast stofnaðilar að Atlantshafsbandalaginu ásamt því að gera tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin. Þannig styrktum við fullveldi okkar. Við stóðum frammi fyrir því á sjöunda áratugnum að þurfa að tryggja aðgang okkar að mörkuðum í Vestur-Evrópu. Þá var tekið annað framfaraskref og Ísland gerðist aðili að EFTA. Seinna, þegar innri markaður ESB var stofnaður, var þriðja framfaraskrefið tekið með aðild Íslands að EES-samningnum.

Kæru vinir. Þetta voru auðvitað átakamál. Við skulum ekki láta eins og um hverja þessara ákvarðana hafi ríkt einhugur, það var ekki þannig. Þá sem nú voru höfð uppi gífuryrði, gífuryrði um fullveldið. Meira að segja hitaveituvæðingin á fyrstu áratugum 20. aldarinnar, hún var líka umdeild. En ég held að í dag telji meginþorri þjóðarinnar æ síðan að öll þessi skref hafi verið þjóð okkar til farsældar.

Og aftur stöndum við frammi fyrir óvissuástandi þar sem heimurinn er að breytast. Svarið við því er að mínu mati ekki að sitja með hendur í skauti og gera ekki neitt og vona að allt verði sem áður eða að liggja lágt. Við þurfum þvert á móti að horfa fram á við, sýna að okkur skortir ekki hugrekki til að taka mikilvægar ákvarðanir því að það er nefnilega íslenska leiðin. Það er íslenska leiðin að þora að taka hugrakkar ákvarðanir. Því tel ég að nú sé einmitt rétti tímapunkturinn fyrir þjóðina okkar að taka afstöðu til þess hvort við eigum að halda áfram aðildarviðræðunum við ESB.

Staða okkar er sterkari en þegar aðildarviðræður fóru fram síðast í skugga efnahagshruns og gjaldeyrishafta. Samningsstaða okkar er góð og það er því einungis rétt að þjóðin fái að ákveða hvort við nýtum okkur þennan styrkleika með því að fá samning á borðið. Þessi þjóðaratkvæðagreiðsla snýst ekki um kosti og galla Evrópusambandsins. Hún snýst einfaldlega um hvort halda eigi aðildarviðræðunum áfram eða ekki, að vita meira. Það þarf enginn að gerast sérfræðingur í Evrópusambandinu fyrir 29. ágúst heldur einfaldlega að skoða hjarta sitt og spyrja sig: Vil ég vita meira? Fyrir mig? Fyrir börnin mín? Fyrir framtíðarkynslóðir landsins okkar? Ef svarið er: já, ég vil vita meira, þá er það X við já. Ef svarið er: nei, ég vil ekki vita meira, þá er X við nei. Ferlið stendur nefnilega og fellur með samþykki þjóðarinnar. Hún þarf fyrst að samþykkja að taka upp þráðinn og hefja viðræður að nýju. Síðan þarf að fá besta mögulega samninginn á borðið ef þjóðin segir já. Svo þarf að kjósa um þann samning. Þjóðin á alltaf síðasta orðið, kæru vinir. Lýðræðislegra getur það varla orðið. Okkur hefur vegnað best þegar við höfum eflt samstarf við önnur ríki, nýtt tækifæri og þannig styrkt stöðu okkar til framtíðar. Það er nefnilega enn og aftur íslenska leiðin, að sjá tækifærin og hafa hugrekki til að nýta þau.

Virðulegi forseti. Ég ætla hvorki að halda því fram að Evrópusambandið sé svarið við öllum okkar úrlausnarefnum né að það sé fullkomið, ónei, ekki fremur en annað alþjóðlegt samstarf, ekki fremur en EES-samningurinn. En það er samband fullvalda lýðræðisríkja sem eru sterkari saman en í sundur, að sýna hvert öðru samstöðu þegar á reynir. Hvaða lærdóm skyldu vinir okkar Danir hafa dregið af því þegar umræða um yfirráð yfir Grænlandi varð skyndilega miðpunktur heimsmálanna? Að einmitt þá hafi aðild Dana að Evrópusambandinu skipt höfuðmáli þegar kom að stuðningi og samstöðu. Þetta hafa Danir sagt: Samstaðan, stuðningurinn, skilningurinn af hálfu Evrópu. Þeir og allir; Svíar, Finnar, Danir, Þjóðverjar, Frakkar, Pólverjar, Spánverjar, Írar, og svo mætti lengi telja, hafa metið það sem svo að þrátt fyrir einhvern ramma sem aðild að sambandinu setur þeim þá sé ávinningurinn svo mikill að þessi rammi sé þess virði. Um það snýst nú raunar allt alþjóðasamstarf yfirleitt.

Ég hef ekki fengið það á tilfinninguna að fólk í Evrópu sé bugað og mjög beygt og upplifi sig að hafa tapað fullveldi eða sjálfstæði með aðild. Spyrjið Dani, Svía, Finna. Fólk er meðvitað um kostina. Fólk er líka meðvitað um gallana en það vill ekki fara til baka. Það vill ekki fara til baka í sundraða Evrópu. Auk þess eiga aðildarríkin sameiginlega, en líka í sitt hvoru lagi, í miklum samskiptum við önnur ríki heims, t.d. Bandaríkin, því að þau hafa verið nefnd í umræðunni. Bandaríkin hafa einmitt hvatt Evrópuríki til að þétta raðirnar. Þessi sameiginlegi slagkraftur er að verða mun mikilvægari í þeim væringum sem nú eru að eiga sér stað í alþjóðakerfinu og við verðum að spyrja okkur: Hvar ætlum við Íslendingar að staðsetja okkur? Viljum við vera ein, láta lítið fyrir okkur fara og bíða eftir áheyrn sem kemur hugsanlega aldrei eða viljum við stilla okkur upp við hlið þeirra þjóða sem við tengjumst nú þegar djúpum efnahagslegum, menningarlegum og ekki síst lýðræðislegum böndum?

Virðulegi forseti. Ef þjóðin vill halda áfram aðildarviðræðum Íslands þá skiptir máli að umsókn Íslands frá árinu 2009 er enn virk, eins og Evrópusambandið hefur sjálft staðfest. Við búum því við að geta tekið upp þráðinn aftur og hafið viðræður nokkuð hratt og örugglega. Ég hef sagt að viðræður gætu verið farnar af stað um og undir áramót. Og þó að nokkuð sé um liðið þá tel ég að hægt verði engu að síður að byggja á þeirri vinnu sem fram hefur farið svo fyrr sé hægt að takast á við þær lykilspurningar sem eru undir. Því er haldið fram að það sé ekki um neitt að semja og því marklaust að láta kjósa um aðildarviðræður fyrst heldur ætti strax að kjósa um aðild. Þetta finnst mér vera lífseig orðræða og hún er ekki í þágu Íslands eða íslenskra hagsmuna. Við aðild værum við auðvitað að ganga í bandalag með fyrirliggjandi reglum og ramma. Við þekkjum það. En hins vegar eru nokkuð mörg dæmi, allmörg dæmi frá fyrri aðildarviðræðum, að ESB-ríkin hafa verið reiðubúin að gera breytingar á reglum sínum til að taka tillit til sérstöðu og taka tillit til meginhagsmuna nýrra aðildarríkja. Í þessu sambandi má nefna sérlausn fyrir landbúnað á norðurslóðum sem Svíar og Finnar tryggðu í sínu aðildarviðræðuferli. Við viljum einmitt skoða sambærilegar lausnir fyrir íslenskan landbúnað en líka auðvitað fyrir sjávarútveg. Einnig má vísa til sérlausnar sem Danir og Maltverjar náðu fram vegna kaupa á fasteignum erlendra aðila. Við eigum að láta á það reyna hvort ekki verði það sama upp á teningnum í tilviki aðildarviðræðna Íslands. Þar þurfum við auðvitað að gera upp við okkur hvar helstu hagsmunir okkar liggja, t.d. á sviði sjávarútvegsmála. Og ég ítreka það að ég mun aldrei skrifa undir samning sem tryggir ekki okkar markmið og okkar yfirráð á því sviði.

Ég er þeirrar skoðunar að þau meginmarkmið sem voru lögð til grundvallar í viðræðunum síðast kjarni þokkalega vel hagsmuni Íslands; að standa vörð um sjávarútveginn, að standa vörð um landbúnaðinn, að standa vörð um auðlindir okkar, velferðarkerfið og ekki síst hagfellda umgjörð fyrir atvinnulífið en líka heimili. Við vitum svo auðvitað ekki niðurstöðuna nema með því að eiga eiginlegar aðildarviðræður við Evrópusambandið. Við verðum, kæru vinir, að vita meira og ég vil biðja hv. þingmenn að fyllast ekki vanmáttarkennd og halda því fram að við munum engu fá áorkað við samningaborðið. Slíkt dugleysi er að mínu mati ekki heldur í samræmi við íslensku leiðina. Þessir sömu aðilar mega spila myndband af þeim ágæta manni, Stefan Füle, ef það veitir þeim einhvern styrk, en hann er reyndar löngu hættur hjá ESB. Núverandi stækkunarstjóri, Marta Kos, sagði í fréttum á föstudag að sambandið tæki einmitt mið af sérstökum aðstæðum umsóknarríkja í aðildarviðræðuferli hverju sinni. Skýrara verður það ekki. Á endanum verður það svo pólitísk ákvörðun aðildarríkjanna hvaða sérlausnir verða í boði. Það kemur í ljós í aðildarviðræðunum. Að minnsta kosti er ekkert í reglum sambandsins sem bannar þær og dæmin eru svo sannarlega til staðar.

Virðulegi forseti. Þetta mál snýst einfaldlega um það hvort við ætlum að treysta þjóðinni okkar, að sjá hvað er í boði og eyða óvissu. Ég get auðvitað bara talað fyrir mig en ég vil ekki horfa til baka eftir tíu ár, eftir 20 ár og hugsa eða vera spurð að því: Hvers vegna nýttum við ekki þetta tækifæri? Ég vil geta horft framan í hjónin sem ég hitti um daginn á Egilsstöðum sem höfðu áhyggjur af börnunum sínum að berjast í bökkum við vaxtabyrðina, líkt og þau hafa sjálf gert alla sína tíð, eins og þau sögðu, og geta sagt þeim að nú sé komið að íslenskum almenningi. Því sama hver hefur staðið í þessari pontu þá höfum við búið við þennan kerfislæga vanda allt of lengi með tilheyrandi tjóni fyrir íslenskar fjölskyldur. Kannski geta íslenskar fjölskyldur líka notið góðs af því sem til að mynda seðlabankastjóri Króatíu fór yfir í ágætu viðtali í Ríkisútvarpinu í morgun um húsnæðisvexti, sem eru orðnir lægri þar en í Þýskalandi eftir inngöngu þeirra í Evrópusambandið og upptöku evru í ársbyrjun 2023. Ég vil vita einmitt nákvæmlega þetta. Ég vil vita meira um þetta í þágu íslenskra fjölskyldna, íslenskra heimila og íslensks atvinnulífs. Spurningin er einföld en með þessari þjóðaratkvæðagreiðslu erum við einmitt að fá úr því skorið hver hugur þjóðarinnar okkar er raunverulega.

Síðan vil ég bara benda á að þetta er ferli sem aldrei tókst að ljúka gagnvart þjóðinni. Farið var af stað með aðildarumsókn 2009. Við fengum aldrei að sjá þá niðurstöðu í formi samnings. Við fengum ekki að sjá hvað aðild að Evrópusambandinu hefði getað komið til með að færa hjónunum á Egilsstöðum, almennu launafólki, börnunum þeirra og okkur öllum.

Virðulegi forseti. Það er mín von að umræða um þetta stóra mál fari fram á faglegum og uppbyggilegum nótum. Það er mikilvægt að svo verði, bæði þegar kemur að okkur sem sitjum hér á þingi en einnig úti í þjóðfélaginu og almennri umræðu. Ræðum saman við eldhúsborðið heima, á kaffistofunni, í heita pottinum og hlustum á hvert annað. Sýnum andstæðum sjónarmiðum virðingu. Verum óhrædd við að spyrja spurninga og komast að kjarna máls, sem mér finnst reyndar mjög einfaldur. Og reynum líka að brosa af og til þó að mörgum sé stundum heitt í hamsi og mér eflaust líka. Þannig mun lýðræðið vísa okkur veginn í þessu máli, virðulegi forseti, eins og öðrum.

Að lokinni þessari umræðu legg ég svo til að tillögunni verði vísað til hv. utanríkismálanefndar.

Virðulegi forseti. Það er komið að íslensku þjóðinni.