157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:25]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsögu sína og vil nota þetta tækifæri til að spyrja nokkurra einlægra spurninga sem íslenska þjóðin á rétt á að fá svör við. Ráðherrann segir að hér sé aðeins verið að taka upp þráðinn á ný, að hér sé um framhald viðræðna að ræða. Gott og vel. En ef það er rétt hlýtur ráðherrann að geta upplýst Alþingi með skýrum hætti hvort samningsmarkmið Íslands séu þá enn þau sömu og áður eða hvort þau hafi breyst. Eru það sömu markmið og Alþingi lagði til grundvallar á sínum tíma um forræði yfir auðlindum, sjávarútvegi, landbúnaði, orkumálum og aðra lykilhagsmuni Íslands? Eða hefur ríkisstjórnin í hyggju að endurmeta þessa afstöðu og þá í hvaða átt? Þetta skiptir máli vegna þess að ríkisstjórnin biður nú þjóðina um að segja já eða nei við áframhaldandi viðræðum án þess að upplýsa þjóðina um hvaða skilyrði Ísland ætlar í raun að setja á borðið.

Forsætisráðherra hefur á sama tíma sagt að staða Íslands sé sterk og að við séum í sterkri samningsstöðu. Ef það er mat ríkisstjórnarinnar þá vaknar næsta spurning: Telur ríkisstjórnin sig þá geta farið fram með enn skýrari og strangari kröfur en áður? Getum við þá sett harðari skilyrði um fiskveiðiauðlindina, um yfirráð yfir orkuauðlindum, um landbúnað og um þá grundvallarhagsmuni sem skipta íslensku þjóðina mestu máli? Ef svarið er já á ráðherrann að segja okkur hér og nú í hverju sú sterkari samningsstaða felst. Hvað er það nákvæmlega sem Ísland telur sig nú geta tryggt betur en áður? Því að það er ekki nóg að biðja þjóðina um að hefja ferðalag, það verður líka að segja þjóðinni hvert við erum að fara, með hvaða skilmálum, með hvaða farartækjum, hvaða nesti við ætlum að taka með og á hvaða forsendum.