þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég fagna því ef Sjálfstæðisflokkurinn er loksins byrjaður að sjá það að umsóknin er gild. Við erum að taka upp þráðinn að nýju og það er byrjað að tala um samningsmarkmið, af því að ég er búin að heyra það að annaðhvort sé umsögnin ekki gild eða það sé ekki um neitt að semja. Þess vegna fagna ég því að við séum að tala um m.a. samningsmarkmið. Ég fór yfir það hér í ræðu minni áðan að það er hægt að miða við þá tillögu sem á sínum tíma var lögð fram og ég held að við getum sameinast um að leggja áherslu á sjávarútveginn, auðlindir okkar, velferðarkerfið, samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, stöðu heimilanna og landbúnaðinn auðvitað. Þetta eru grundvallaratriði sem ég nefndi áðan í minni ræðu, leiðarljós sem við munum hafa í huga ef þjóðin segir já. Ég held að við getum öll hér inni sameinast um þessi atriði. Það sem ég sé síðan fyrir mér ef þjóðin segir já er að þá munum við skila hratt skýrslu hingað til þingsins í samráði og samtali við hagsmunaaðila og frjáls félagasamtök þar sem við förum betur yfir samningsmarkmiðin. En ég myndi segja, og ég vonast til þess, að við getum sameinast um þennan grunn sem ég lagði til í minni ræðu.
Samningsstaðan, er hún sterkari? Já, ég get bara eftir þau samtöl sem ég hef átt við mjög marga framkvæmdastjóra innan sambandsins sagt að alþjóðamálin skipta einfaldlega meira og meira máli. Þessir viðsjárverðu tímar þar sem er í rauninni verið að fara svolítið í þetta gangverk sem Mark Harney kom inn á, að meðalstór ríki og ekki síst lítil ríki eru svolítið að þétta sig saman. Því hvað gerist í tollastríði? Þá vinnur sá sterki. Hann vinnur alltaf. Og hvað gera þá önnur ríki? Þau binda sig saman, þau bindast bandalagi til þess að passa frelsi og markað fyrir fyrirtækin sín, til þess að passa upp á frelsi og markað og aðgang og stöðu fyrirtækjanna og atvinnulífsins (Forseti hringir.) hjá sér. Það er það sem þau geta gert og það er það sem við sjáum líka, að styrkja slíkt samband þannig að þessi ríki verði fleiri en færri. Þar er m.a. styrkurinn okkar.