157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:30]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð nú að segja að ég er pínulítið áttavillt í málflutningi ráðherranna hér því að í málflutningi ríkisstjórnarinnar um ESB virðist vera grundvallaróvissa um hvað sé eiginlega verið að leggja til. Í sjálfri þingsályktunartillögunni stendur skýrt að þjóðin eigi að greiða atkvæði um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu en í greinargerðinni er jafnframt vísað til þess að umsóknin hafi ekki verið afturkölluð. Hæstv. forsætisráðherra hefur hins vegar talað opinberlega um þjóðaratkvæði um að hefja aðildarviðræður á næstu mánuðum að nýju — að nýju. Ég verð því að spyrja: Hvor framsetningin er rétt? Er ríkisstjórnin að kynna þjóðinni framhald á 15 ára gömlu ferli, eins og orðalag þingsályktunartillögunnar gefur til kynna, eða er verið að taka upp þráðinn með sömu kaflaskiptingum og endurvöktum viðræðum? Eða er hún að biðja um nýtt pólitískt umboð til nýrra viðræðna á nýjum forsendum? Mér er brugðið að heyra ráðherrann segja hér að það þurfi enginn að verða sérfræðingur í ESB (Forseti hringir.) fyrir 29. ágúst. Fólk mun kjósa að hefja aðlögun Íslands (Forseti hringir.) að öllu regluverki ESB. Þetta er risastór spurning. Þetta er það sem fólk (Forseti hringir.)verður að átta sig á og ráðherra á ekki að tala einhvern veginn léttvægt um þá spurningu. Svo nefnir hæstv. ráðherra hér að Stefan Füle sé hættur. Það er vissulega rétt, og þá spyr maður: Eru ekki bara (Forseti hringir.) allir hættir sem voru í þessum aðildarviðræðum á sínum tíma sem ráðherra vill halda áfram með?