þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Já, það er bara velkomið að móttaka nýjar upplýsingar um að Stefan Füle sé hættur. Hitt er síðan að umsóknin er í gildi. Ég greini enn þá ergju og einhverja gremju yfir því að það séu alveg skýr skilaboð frá Evrópusambandinu. Við vinnum með það. Þess vegna erum við að hefja aðildarviðræður að nýju og þess vegna erum við m.a. að segja í tengslum við þingið: Getum við ekki haft þessi viðmið sem á sínum tíma voru lögð fram sem viðmið? Getum við ekki sameinast um það að samningsmarkmiðin verji fiskveiðiauðlindina, auðlindir okkar, landbúnaðinn, velferðarkerfið og ýti undir samkeppnishæfni og stöðu íslensks atvinnulífs? Ég hélt að við gætum sameinast um þetta en mér finnst skrýtið ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að taka undir það.
Já, mér finnst — við erum 80% þegar inni í Evrópusambandinu. Það er um margt að semja. Við þurfum á endanum, eins og hv. þingmaður er að benda á, að setja samningsmarkmið ef þjóðin segir já. Það þýðir það að um margt er að semja, sérstaklega á þeim sviðum sem eru okkur Íslendingum kær. Og ég held að ég segi það aldrei of oft: Ég mun ekki skrifa undir samning sem felur á einhvern hátt í sér afsal á auðlindum Íslands.