157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:35]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Svarið við síðustu spurningunni er já, bara þannig að ég svari spurningunni strax. Mér finnst hins vegar gott sem kom fram hér áðan að hv. þingmaður og formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, er að átta sig á því að Evrópusambandið er ekki samband einhvers eins mengis. Hann dró einmitt fram svo fallega, og mér fannst svo gott að loksins sé ljósið að birtast þarna, að þetta eru ólík ríki með ólíka hagsmuni sem nota sína rödd við borðið til að verja sína ólíku hagsmuni, sín ólíku sérkenni. Þess vegna er svo fallegt að sjá menningarlegan mun innan Evrópusambandsins. Við erum að sjá alls konar mun á þjóðríkjum sem beita utanríkisstefnu sinni, ekki bara í gegnum Evrópusambandið heldur líka með því að styrkja böndin. Eins og bara núna um daginn þegar Friedrich Merz var í Indlandi, hann er búinn að fara til Kína og það sama með minn kollega þar, hann hefur gert það sama, sama með Frakka. Það er sama með aðrar þjóðir að þjóðirnar standa líka sjálfar, en þær eru sterkari saman. Ég vona að það sé ekki þannig að hv. þingmaður sé að segja, t.d. í tollastríði, að við eigum ekki að reyna að tryggja okkar varnir þannig að hinn stóri og sterki geti bara gert allt einhliða og við komum ekki okkar fyrirtækjum í skjól. Mín skoðun er sú að við eigum að gera það sem við getum til þess að vera í sambandi og bandalagi með öðrum þjóðum þannig að mörg ríki verði sterkari. Það er nákvæmlega þannig sem Evrópusambandið hefur verið að virka og gerði til að mynda í Grænlandsdeilunni, sem ég veit að við vorum pínulítið ósammála um hvernig ætti að nálgast. En þar komu Evrópusambandið og Evrópulöndin mjög sterk með Danmörku og Grænlandi og undirstrikuðu friðhelgi landamæra. Mér finnst þetta skipta máli.

Svo finnst mér líka pínu dapurlegt að skynja það að menn hafi litla tiltrú á íslenskum samningamönnum. Við eigum að vera með kassann úti, við eigum að fara íslensku leiðina (Forseti hringir.)og ég segi enn og aftur: Horfum til þeirra sem gengu á undan og deildu, m.a. þegar verið var að karpa um fullveldið, bæði 1949 og þegar við gengum inn í EFTA og fórum inn í EES. Þá var fólk með kassann úti (Forseti hringir.) og taldi sig, eins og ég í dag, sannfært um það að vera að verja fullveldið, verja sjálfstæðið og verja hagsmuni Íslendinga. Við eigum að vera með (Forseti hringir.) kassann úti því að staða okkar er sterk til að fara inn í slíkar aðildarviðræður.