157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra þóttist misskilja mig og endurtúlkaði það sem ég sagði með þeim hætti að Evrópusambandið leyfði allt mögulegt í viðræðum. Það sem ég benti á, og fyrrnefnd Marta Kos og fleiri hafa bent á, er það að jú, viðræður eru ólíkar. Það er vegna þess að löndin eru ólík og eiga eftir að uppfylla ólíkar kröfur en öll þurfa þau að uppfylla sömu kröfur. Öll þurfa þau að uppfylla kröfur Evrópusambandsins. Um þetta hafa fulltrúar Evrópusambandsins verið skýrir frá umsókninni 2009 og reyndar frá því löngu áður. Það er alveg á hreinu út á hvað umsókn um aðild að Evrópusambandinu gengur. En ég ætla að ítreka spurningu hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur frá því hér áðan því að mér fannst hæstv. ráðherra ekki svara henni að fullu: Ef menn ætla að láta sem svo að gamla (Forseti hringir.) umsóknin sé enn þá virk og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið, gildir þá þingsályktunartillagan frá 2009 og allt sem þar kom fram áfram?