157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:40]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil einmitt draga fram eins og fleiri orð Mörtu Kos stækkunarstjóra sem sagði fyrir helgi að sambandið tæki mið af raunveruleika og aðstæðum hvers umsóknarríkis í aðildarferlinu. Þarna talar manneskja með mikla vigt innan Evrópusambandsins. Auðvitað er það þannig að það er á endanum pólitísk ákvörðun aðildarríkjanna hvað þau eru til í að semja um. Ég er sannfærð um það, ekki bara eftir mína reynslu sem utanríkisráðherra heldur líka starfandi í stjórnmálum og hafandi verið m.a. í utanríkismálanefnd meira og minna allan minn þingferil, að það er mikið að sækja fyrir okkur Íslendinga, til að mynda í fiskveiðistjórnarmálum. Ég er sannfærð um það að við munum ná góðri niðurstöðu þar.

Hitt er síðan það sem vekur mig til umhugsunar og ég undirstrika, eins og ég svaraði áðan: Viðmiðin eru alltaf til staðar. Við erum að tala um sjávarútveg, að verja sjávarútveginn, landbúnaðinn, auðlindir, atvinnulífið og velferðarkerfið. En mér finnst skrýtið að m.a. Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur, mér finnst hluti þingheims vera að tala svolítið eins og hann sé pínu elítan; við hér eigum bara að taka ákvörðun, við treystum ekki þjóðinni af því að við vitum meira, við vitum betur(Gripið fram í.) og þess vegna ætlum við ekki að treysta þjóðinni. Ég treysti þjóðinni. Með fullri virðingu fyrir þingheimi (Forseti hringir.)finnst mér að við eigum öll að gera það og mér finnst skrýtið að skynja þennan elítisma koma frá stjórnarandstöðunni um þessar mundir. (Gripið fram í.)