157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:41]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið er eitt stærsta pólitíska mál okkar tíma. Þess vegna skiptir öllu máli að þjóðin fái skýrar upplýsingar áður en hún er beðin um að taka afstöðu. En í greinargerðinni er í raun og veru lagt upp með hið gagnstæða. Þar segir að uppfærð samningsmarkmið verði unnin síðar ef þjóðin segir já. Er það ekki öfug röð? Ættum við ekki fyrst að vita á hvaða forsendum viðræður eiga að byggja, hvar mörkin liggja, áður en þjóðin er spurð um næsta skref? Annars, virðulegur forseti, er þetta pínulítið eins og að fara í atvinnuviðtal og þurfa að ákveða hvort maður þiggi ákveðið starf en veit í raun og veru ekki hvað starfið felur í sér. Það kemur í ljós þegar maður skrifar undir.

Svo er annað sem stingur í augun. Í textanum er talað um að tryggja eigi forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og fiskveiðiauðlindinni. En af hverju er ekki talað um skýrt forræði, fullt forræði? Hvað merkir forræði eitt og sér í þessu samhengi? Hversu mikið forræði og innan hvaða ramma og með hvaða fyrirvörum? Þegar rætt er um auðlindir þjóðarinnar, sjávarútveg og landbúnað, almannaþjónustu og fullveldislega hagsmuni Íslands dugar ekki orðalag sem hægt er að teygja í allar áttir. Þjóðin á rétt á að vita fyrir fram hvað er samningsatriði og hvað er það ekki. Það á jafnt við um þá sem eru andvígir áframhaldandi viðræðum og þá sem vilja halda þeim áfram. Þeir sem síðar semja fyrir Íslands hönd þurfa líka að vita skýrt hvar þjóðin dregur línuna.

Því spyr ég hæstv. utanríkisráðherra: Hvernig á þjóðin að geta tekið upplýsta ákvörðun um framhaldið þegar ríkisstjórnin hyggst fyrst móta uppfærð samningsmarkmið eftir þjóðaratkvæðagreiðslu? (Forseti hringir.) Og af hverju er aðeins talað um forræði yfir auðlindum þjóðarinnar en ekki skýrt og ótvírætt um fullt forræði og afdráttarlausar rauðar línur Íslands?