þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Enn og aftur fagna ég því að það er smám saman verið að ýta út af borðinu þessari mýtu að það sé ekki um neitt að semja. Sú mýta er að fara núna út af borðinu og mér fannst það gott og ég bara fagna því að stjórnarandstaðan er þó komin þangað. Í þingsályktunartillögunni er einmitt verið að draga fram þessi viðmið sem voru lögð fram og eru í þingsályktunartillögunni sem liggur fyrir og var samþykkt á sínum tíma, 2009, í þinginu. Ég hélt að við værum að sameinast um það. Þetta á þingnefndin líka eftir að fara yfir betur. Það er sjávarútvegur. Við viljum standa vörð um sjávarútveginn. Við viljum standa vörð um auðlindir okkar. Við viljum standa vörð um landbúnaðinn. Við viljum standa vörð um velferðarkerfið okkar. Við viljum standa vörð um samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og líka heimila. Þetta held ég að við gætum sammælst um. Ég mun segja já við fyrri atkvæðagreiðslunni, en ég segi líka eins og forsætisráðherra: Ég mun ekki samþykkja samning eða skrifa undir samning sem treystir ekki hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Það er bara þannig. Af hverju erum við að þessu? Við erum að þessu til að fjölga tækifærum og valkostum Íslands meðan við höfum sterka samningsstöðu. Við erum sterk þjóð, við höfum ríkt framlag með því að undirbyggja það sem við höfum verið að segja varðandi lýðræði, frelsi og mannréttindi og þessa prinsippafstöðu okkar, sem er því miður þverrandi hjá ríkjum þessa dagana. Við viljum vera í hópi þeirra sem standa fyrir nákvæmlega þessum gildum. Allt þetta mál snýst um að tryggja hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Ég undirstrika að það er ekki bara í sjávarútvegi. Það er þannig að ef við náum ekki sterkum samningi fyrir Ísland þá mun ég ekki segja já. Það er bara þannig. Ég hef hins vegar trú á því að heildarsamhengið — það er þess vegna (Forseti hringir.) sem ég vil fá það fram hvað það þýðir fyrir íslenska þjóð að fara til að mynda sömu leið og Króatía gerði, sem fór fyrst inn í sambandið og tók síðan upp evru og við það lækkuðu húsnæðisvextir króatískra heimila um mörg prósent. Það er milljarðaávinningur, tugmilljarðaávinningur fyrir króatískt samfélag. Það sama gildir um íslenskt.