þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra kærlega fyrir andsvarið. Ég held að svona í stóru myndinni gerum við okkur öll sem hér erum grein fyrir því hvar línurnar eiga að liggja, hvar varnarlínurnar eiga að liggja, hvað þarf að verja, hvað þarf að passa og ég held að ágreiningurinn sé ekkert sérstaklega mikill hér inni hvað það varðar. Spurningin er hins vegar: Hvað erum við tilbúin að ganga langt. Um það held ég að okkur greini á að einhverju leyti hér inni og sterkur samningur, eins og hæstv. utanríkisráðherra talaði hér um, getur verið misjafn eftir því við hvern þú talar. Samningur sem hæstv. utanríkisráðherra finnst sterkur finnst okkur hér inni kannski ekki sterkur. En það er skrýtið, virðulegur forseti, það sem segir hér í greinargerðinni, að ákveði þjóðin að halda áfram viðræðum (Forseti hringir.) um aðild að ESB myndu stjórnvöld vinna uppfærð samningsmarkmið í víðtæku innlendu samráði sem síðan yrðu lögð fyrir Alþingi. (Forseti hringir.) Ég spyr því hæstv. utanríkisráðherra: Erum við ekki að gera þetta í öfugri röð? Þyrftum við ekki að vera með þessi markmið klár áður en við leggjum þessa spurningu fyrir þjóðina (Forseti hringir.) þannig að við séum með allt uppi á borðum?