157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:48]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nákvæmlega það sem við erum að gera. Við erum með allt uppi á borðum. Við erum að tala um þau viðmið, samningsviðmið, sem hafa verið lögð til grundvallar og ég hefði haldið að það væri sátt um. Svo spyrjum við þjóðina, vill hún að við förum og göngum til samningaviðræðna, já eða nei? Viljum við vita meira hvað aðildarviðræður og samningur hefur í för með sér fyrir íslensk heimili og íslensk fyrirtæki? Þá er ég ekki að tala bara um fyrirtækin sem eru út fyrir sviga og gera ekki upp í íslenskum krónum. Ég er að tala um venjuleg lítil og meðalstór fyrirtæki sem eru m.a. að vinna með krónuna. Mér finnst þetta vera frekar gegnsætt og sú vinna sem á eftir að eiga sér stað í hv. utanríkismálanefnd mun skerpa enn frekar á þessu. En ég held að þetta sé mjög einfalt. Varðandi landbúnað til að mynda þá var stuðningur finnskra bænda ekki mikill við inngönguna á sínum tíma. Hann hefur snaraukist af því að þeir fengju varanlegar sérlausnir. Það var tekið tillit til þeirra sérstöku aðstæðna. Og vel að merkja var innganga til að mynda Svía ekki samþykkt með miklum yfirburðum. En stuðningur Svía, (Forseti hringir.) stuðningur Finna, stuðningur Dana, þeirra þjóða sem eru mestu vinaþjóðir okkar, við Evrópusambandið hefur bara aukist og það verulega eftir að þær gengu í sambandið.