157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:50]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Við stöndum hér í dag og ræðum tillögu sem hefur að geyma eina af þeim grundvallarspurningum sem snerta framtíð landsins sem sjálfstæðrar þjóðar. Þetta er stór stund og á stórum stundum þarf þingið að sinna hlutverki sínu, vera gagnrýnið og skýrt og taka málin til vandaðrar umræðu. Við Sjálfstæðismenn trúum á Ísland. Við trúum á íslenska þjóð. Við trúum á að við getum ráðið okkar málum sjálf og við treystum þjóðinni. Einmitt þess vegna viljum við að þjóðin haldi völdum sínum. Þeir sem tala um að færa vald yfir til Brussel treysta þjóðinni ekki. En það gerum við. Við treystum dómgreind fólksins í landinu. Við treystum því að Íslendingar geti tekið afstöðu til stórra mála þegar þeir fá réttar upplýsingar og þegar umræðan er upplýst og heiðarleg. En einmitt vegna þess að við treystum þjóðinni þá segjum við líka að það verði að spyrja réttra spurninga. Það sem ríkisstjórnin leggur hér fram er ekki saklaus og óskuldbindandi millileikur. Það er pólitísk ákvörðun um að setja Ísland aftur inn á aðildarbraut að Evrópusambandinu. Það er ekki hægt að slíta það úr samhengi, fegra það með orðalagi eða láta eins og hér sé aðeins verið að opna á frekara samtal.

Við höfum séð þetta allt áður. Alþingi samþykkti árið 2009 að sækja um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum skyldi þjóðin greiða atkvæði um endanlegan aðildarsamning. Nú er hins vegar verið að leggja til ráðgefandi þjóðaratkvæði um það eitt hvort halda eigi viðræðunum áfram áður en samningsmarkmiðin liggja fyrir og áður en þjóðin veit hvaða skilyrði íslensk stjórnvöld ætla raunverulega að setja. Ráðherra sagði í andsvari hér áðan að við þyrftum að setja okkur samningsmarkmið ef þjóðin segði já. Hvers lags málatilbúningur er þetta? Þarna liggur kjarni málsins. Ef ríkisstjórnin vill umboð frá þjóðinni til að fara í þessa vegferð þá er lágmark, algjört lágmark, að hún upplýsi þjóðina um það hvað hún ætlar að semja um. Við hverju er þjóðin að segja já eða nei? Hvað eru íslensk stjórnvöld að fara að verja? Hverjar eru rauðu línurnar sem við munum ekki stíga yfir? Hvaða undanþágum telja þau sig geta náð fram? Hvað á að gerast í sjávarútvegi? Hvað á að gerast í orkumálum og hvað á að gerast í landbúnaði? Hvað á að gerast með forræði þjóðarinnar yfir eigin auðlindum? Það er ekki nóg að segja við þjóðina: Farið af stað og treystið okkur. Fólk á rétt á því að vita hvert ferðinni er heitið og á hvaða forsendum hún er farin. Enginn leggur af stað í samningaferli af þessari stærðargráðu til að sjá bara hvað gerist.

Þegar ríki fer í aðildarviðræður er það vegna þess að verið er að kanna á hvaða forsendum aðild geti orðið að veruleika. Þú stígur ekki upp í flugvél og segir svo eftir flugtak að þú sért í raun ekkert á leiðinni, bara að kíkja á aðstæður í Brussel. Fólk sér í gegnum slíka útúrsnúninga. Þjóðin veit að þegar ríki sækir um aðild og gengur inn í aðlögunarviðræður þá er það ekki gert í tómarúmi. Það er gert vegna þess að menn vilja kanna hvort aðild sé raunhæf niðurstaða og undirbúa aðlögun að regluverki Evrópusambandsins. Ríkisstjórnin reynir að stilla þessu upp þannig að þeir sem gagnrýna þessa tillögu séu að gera lítið úr vilja þjóðarinnar. Það er rangt. Þjóðaratkvæði er gott og gilt lýðræðislegt tæki en lýðræðið krefst líka heiðarleika. Það krefst vandaðrar umræðu og það krefst þess að þjóðkjörnir fulltrúar segi satt um það sem þeir eru að biðja um umboð fyrir. Við erum reyndar sammála ríkisstjórninni um eitt atriði. Hún hefur ekki umboð til að ráðast í þessa vegferð án þess að leita fyrst til þjóðarinnar. En þá verður líka að gera það af heilindum, ekki með því að búa til loðna spurningu um fyrsta skrefið inn í Evrópusambandið.

Virðulegi forseti. Það er annað sem vekur athygli mína, það er fordæmalaust að ráðast í svona vegferð án þess að þingmeirihluti hafi áður staðið skýrt og óumdeilanlega að baki sjálfri hugmyndinni um aðild. Hér er ríkisstjórn sem sjálf er klofin í grundvallarspurningum um fullveldi, forræði og framtíðarskipan landsins. Á blaðamannafundi síðastliðinn föstudag fullyrti hæstv. menntamálaráðherra, formaður Flokks fólksins, að ríkisstjórnin myndi ekki tala fyrir því að þjóðin greiði atkvæði á tiltekinn hátt. Einn stjórnarflokkur segist vera á móti inngöngu en styður þó að farið sé af stað í ferli sem á samkvæmt eðli sínu að kanna og undirbúa aðild að Evrópusambandinu. Þetta er mótsögn sem þjóðin sér. Við skulum líka rifja upp orð forsætisráðherra fyrir kosningar. Þá var talað skýrt um að forgangsmálið væri efnahagslegur stöðugleiki hér og nú, ekki ESB, ekki þessi vegferð. Talað var um húsnæðismál, heilbrigðismál, samgöngur og atvinnustefnu. Talað var um að það væri bannað að plata fólk. Talað var um að ekki yrði gengið á bak orða sinna og í áramótaávarpi um síðustu áramót var því lýst yfir að ekkert væri fjær sanni en að íslenska leiðin væri ekki lengur fær. En hvað blasir við nú tæpum tveimur og hálfum mánuði síðar? Verðbólgan er enn þrálát, vextir eru enn of háir, atvinnuleysi vex, fyrirtæki finna fyrir óvissu, heimilin finna fyrir þrýstingi og í stað þess að ríkisstjórnin horfist í augu við þessi verkefni, í stað þess að hún sýni festu í efnahagsmálum, í stað þess að hún leggi fram trúverðuga áætlun um stöðugleika, þá leitar hún skjóls í deilu um Evrópusambandið. Raunverulegur stöðugleiki byrjar nefnilega heima. Það er ekki hægt að fela skort á árangri í innanlandsmálum með því að opna nýjan og djúpstæðan ágreining um fullveldi Íslands. Það er ekki hægt að nota ESB sem pólitíska ábreiðu þegar ríkisstjórnin ræður ekki við verðbólgu, vexti og atvinnuleysi.

Og svo kemur tímasetningin. Ríkisstjórnin vill kjósa 29. ágúst. Hvers vegna liggur svona á? Hvers vegna er ekki stefnt að því að þjóðin fái lengri tíma, meiri yfirferð og heildstæðari umræðu síðar um haustið? Ef ríkisstjórnin vill raunverulega upplýsta umræðu, af hverju velur hún þá þann tíma sem er hvað verst til þess fallinn að skapa djúpa og vandaða samfélagsumræðu? Ljóst er að þessi tímasetning er ekki valin með hagsmuni þjóðarinnar í huga heldur hentisemi ríkisstjórnarinnar. Því til viðbótar rifja ég upp orð hæstv. forsætisráðherra frá því á blaðamannafundinum á föstudag, með leyfi forseta: „Fólk þarf því ekki allar upplýsingar um hvað það að tilheyra ESB endanlega myndi þýða. Maður sér að umræðan er að fara svolítið þangað. Það er ekki ráðandi afstaða um það hvort fólk vilji eyða tíma sínum í þetta eða ekki.“ Fólk þarf ekki allar upplýsingar um hvað það þýðir að tilheyra ESB, segir hæstv. forsætisráðherra. Hverjir voru það aftur sem treystu þjóðinni?

Virðulegi forseti. Stundum er því haldið fram að þessi umræða snúist um að Ísland verði sterkara með því að sitja við borðið. Ég skil þau sjónarmið. Ég skil að sumir telji að í breyttum heimi eigi Ísland að kanna hvort nánara samband við Evrópusambandið þjóni hagsmunum okkar betur. Það er réttmæt afstaða. En þá þarf líka að svara spurningunni: Hvað er það nákvæmlega sem fæst með aðild sem gerir íslenskt samfélag betra en það er í dag? Hvað fá íslensk heimili, íslensk fyrirtæki, íslenskur sjávarútvegur, íslenskur landbúnaður og íslenskir neytendur út úr þessu sem þeir fá ekki með núverandi samstarfi á grundvelli EES-samningsins? Hvað er það sem ríkisstjórnin telur að bæti líf fólks í þessu landi með afgerandi hætti? Við höfum þegar mjög víðtækan aðgang að innri markaði í Evrópu í gegnum EES. Við eigum í nánu samstarfi við Evrópuríki en við höldum um leið sjálf forræði á grundvallarsviðum. Það er stóra atriðið í þessu. Það er kjarninn í því að treysta þjóðinni og treysta Íslandi. Þjóðin á betra skilið en útúrsnúninga. Þjóðin á betra skilið en pólitíska feluleiki. Þjóðin á betra skilið en ríkisstjórn sem leitar skjóls í umræðu um ESB af því að hún ræður ekki við verkefnið heima fyrir. Og ef ríkisstjórnin vill fá umboð frá þjóðinni á hún að leggja öll spil á borðið. Hún á að segja skýrt hvaða skilyrði hún ætlar að setja, hvaða hagsmuni hún telur sig geta varið og hvaða árangri (Forseti hringir.) hún trúir raunverulega að hægt sé að ná. Annars er hún ekki að biðja um upplýsta umræðu um hagsmuni og framtíð okkar sem þjóðar. Þá er hún bara að biðja þjóðina um blint traust og það getum við Sjálfstæðismenn aldrei samþykkt því að við treystum þjóðinni áfram fyrir völdum á Íslandi.