157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:01]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur fyrir þessa ræðu. Hugurinn hvarflaði aftur til ársins 2013 þegar þáverandi stjórnarflokkar lofuðu því skýrt að fara með þetta mál og spyrja þjóðina hvort halda ætti áfram með aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Það sviku þeir rækilega. Svo talar hv. þingmaður um heiðarleika og ég verð að segja að mér finnst þetta ekki heiðarleg nálgun. Það er kannski mín spurning: Hvernig getur hv. þingmaður útskýrt þetta mynstur sem er að teiknast upp, að það virðist aldrei vera rétti tíminn? Það virðast aldrei vera réttu skoðanirnar. Það virðist aldrei vera rétta þjóðin sem á að fá að taka þátt í svona atkvæðagreiðslu þannig að mér finnst miklu heiðarlegra af hálfu Sjálfstæðisflokksins, sem sveik þetta 2013 og vill þetta ekki núna af því að það eru einhverjir útúrsnúningar um að þetta sé ekki rétti tíminn og jarí, jarí, jarí — er ekki bara heiðarlegra að segja: Við viljum ekki fara þessa leið, í stað þess að vera með sífellda útúrsnúninga?