157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:02]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir spurninguna sem til mín er beint. Hún er komin aftur til ársins 2013 og líður einhvern veginn illa yfir því. Ég ætla bara að minna hæstv. ráðherra á að það aðlögunarferli sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar fór í sigldi í strand. Það steytti á skeri þannig að það var algerlega tómt mál um að tala að sú ríkisstjórn gæti klárað þetta mál. Af hverju segi ég það? Vegna þess að það var farið í 11 kafla af 37 og veigamestu kaflarnir voru aldrei hreyfðir. Það var aldrei opnað fyrir umræðu um sjávarútveg, landbúnað eða orkuna okkar. Af hverju var það ekki gert? Vegna þess að það var alveg augljóst að það var ekki um neitt að semja og það er jafn augljóst 2026 og 2013. Velkomin, hæstv. ráðherra, til ársins 2026.