157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:04]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að eiga hér við mig orðastað og hæstv. ráðherra segir að sú ríkisstjórn sé farin, ríkisstjórnin sem lagði af stað í þessa vegferð 2009. Því miður er þessi ríkisstjórn ekki farin, hún er endurfædd. Þessi ríkisstjórn fæddist aftur og tók til valda 21. desember 2024, ný Jóhönnustjórn. Þetta eru gamalkunnug stef sem við verðum vitni að á hverjum einasta degi í tíð þessarar ríkisstjórnar. Við erum aftur að upplifa Jóhönnustjórnina sem gat ekki klárað það verkefni sem hún lagði af stað í með aðlögunarviðræður þannig að það þýðir ekkert að vera að tala um það. Það var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Samfylkingarinnar sem gat ekki klárað þessa aðlögun eða viðræður og gat ekki farið með málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þau sprungu á limminu. (utanrrh.: En treystir Sjálfstæðisflokkurinn þjóðinni? Þú svarar ekki spurningunni.) Sjálfstæðisflokkurinn treystir alltaf þjóð sinni.