þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa ræðu. Upphaf hennar fjallaði um það hvort verið væri að spyrja réttu spurningarinnar. Það má auðvitað alveg ræða það. En ég held að ástæðan fyrir því að spurningin sé nákvæmlega svona sé að þegar viðræðurnar voru settar í bið 2013 var sammæli um það þvert á flokka, sammæli í öllu samfélaginu og skýr kosningaloforð gefin af Sjálfstæðisflokknum, af Framsóknarflokknum undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og í raun þvert á pólitíkina — vegna þess að viðræðurnar voru í bið og málið fór milli kjörtímabila — að það væri rétt að spyrja þjóðina um framhaldið. Það er verið að efna það núna. Þess vegna er þetta rétta spurningin, ekki satt? Og ég skil eiginlega ekki hvernig er hægt að leggja það öðruvísi upp.