þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka þetta andsvar en mér fannst ekki komist að kjarna málsins sem er það sammæli í íslenskum stjórnmálum að til þess að taka þetta skref, að hefja aftur viðræður, þá þyrfti að leita umboðs frá þjóðinni. Þetta var skoðun Sjálfstæðisflokksins. Þetta var skoðun Framsóknarflokksins. Þetta er skoðun þessarar ríkisstjórnar og það er lýðræðislegt, þegar svona langt er um liðið, að sækja umboð til að halda áfram. Hér spurði formaður Sjálfstæðisflokksins: Hvað fá íslensk heimili, hvað fá íslensk fyrirtæki, hvað fá íslenskir hagsmunir? Ég gæti haldið hér innblásna ræðu um það og formaður Sjálfstæðisflokksins gæti komið upp og efast um það, en eina leiðin til að fá úr því skorið hvað íslensk heimili, fyrirtæki og íslenskir hagsmunir fá er að klára samninga. Þess vegna er ég þeirrar hjartans sannfæringar að það eigi að segja já við þessari spurningu sem Sjálfstæðisflokkurinn, eins og þessi ríkisstjórn, lagði upp. Ég teldi best fara á því að pólitíkin í landinu, stjórnmálin og Alþingi myndu hefja sig upp yfir skotgrafirnar og standa saman að því að spyrja þjóðina að þessu í þjóðaratkvæðagreiðslu í haust.