þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég hef aldrei sagt að ekki megi spyrja þjóðina, ég hef bara aldrei sagt það og ég held að enginn Sjálfstæðismaður hafi dregið það í efa, bara alls ekki. Það sem ég hef sagt er: Hver á spurningin að vera? Spyrjið þá réttu spurninganna, afvegaleiðið ekki fólkið í landinu.
Mig langar líka að spyrja, af því að hv. þingmaður vísar til þess að hér muni allt umhverfi heimila og fyrirtækja taka miklum breytingum til hins betra ef við gerumst fullgildir aðilar að Evrópusambandinu: Hvað hefur þingmaðurinn fyrir sér í því? Mér finnst það líka vera að slá ryki í augu fólks. Ég er nýbúin að lesa hér grein eftir samflokksmann hv. þingmanns, Magnús Árna Skjöld Magnússon, þar sem hann talar í löngu máli um einmitt hvað lífið verður betra fyrir heimilin í landinu og lífið verður betra fyrir allt atvinnulífið. (Forseti hringir.) Það er ekki hægt að lofa þessu. Það er enginn samnefnari fyrir því að hér muni allt okkar umhverfi taka einhverjum gríðarlegum stakkaskiptum. (Forseti hringir.) Við höfum staðið okkur vel. Við höfum stýrt okkar landi sjálf og ég er þeirrar skoðunar að við eigum að halda á forræði okkar sjálf.