þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Hæstv. utanríkisráðherra kýs að ímynda sér að Ísland sé enn með virka umsókn um aðild að Evrópusambandinu og vill taka upp þráðinn þar sem frá var horfið. Hæstv. ráðherra langar að komast að því hvað við fáum góðan samning, einkum varðandi auðlindamál. En hvar var horfið frá viðræðunum og hverjir hurfu frá þeim? Það var ríkisstjórnin sem sótti um, hún hætti viðræðunum. Og hvenær gerði hún það? Þegar hún fékk svör við því að það væru engar varanlegar undanþágur í auðlindamálum. Það var ekki einu sinni hægt að opna kaflana. Hæstv. utanríkisráðherra er þegar búin að fá svar við vangaveltum sínum. Það svar barst fyrir alllöngu. Þess vegna velti ég fyrir mér, og spyr hv. þm. Guðrúnu Hafsteinsdóttur hvort hún geti hjálpað mér að greina það, hvers vegna ríkisstjórnin velur þennan tímapunkt til (Forseti hringir.) að dreifa þessari upplýsingaóreiðu, steypa þjóðinni í átök um Evrópusambandið og biðja um svör við spurningum sem var svarað fyrir löngu síðan.