157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:13]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Öllum landsmönnum er ljóst að Viðreisn hefur gengið hér um með Evrópusambandsþráhyggju í mörg ár. Sú þráhyggja náði inn í ríkisstjórnarsáttmálann. Jú, það er alveg rétt sem kom fram í máli ráðherra hér fyrr í dag að það hefur legið ljóst fyrir að það er í ríkisstjórnarsáttmálanum að fara eigi í þessa vegferð. Af hverju núna? Ráðherra sagði hér fyrr í dag að það væru svo viðsjárverðir tímar og við þyrftum að auka öryggi og varnir okkar Íslendinga. Mér finnst alveg með ólíkindum ef það er vörn okkar, til að tryggja öryggi og varnir okkar Íslendinga, að hlaupa inn í tollabandalag sem Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, er nýbúinn að segja að geti ekki einu sinni varið sig sjálft. Ef þetta er öll vörnin sem við fáum að heyra um frá hæstv. utanríkisráðherra þá hef ég áhyggjur.