157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:14]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Sumir eðlisfræðingar halda því fram að til sé óendanlegur fjöldi heima og fyrir vikið séu margir þessara heima nánast nákvæmlega eins og okkar, nema kannski örlítið öðruvísi. Ég efast reyndar um að þetta sé rétt. En segjum sem svo að til væri óendanlegur fjöldi veralda sem margar væru nánast eins og okkar. Telur hv. þingmaður að í einhverri slíkri veröld sé til staðar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, verandi hæstv. utanríkisráðherra, hafandi samið við Evrópusambandið og rætt við Evrópusambandið, aðlagast, sem myndi svo leggja til að aðildarsamningi yrði hafnað?