157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:16]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að við séum mörg hér inni sem höfum búið í Evrópusambandinu, ég bjó þar í fimm ár. Ég get fullyrt að það er hægt að lifa góðu lífi þar, bara mjög góðu lífi. Ég er mikill Evrópusinni, ég er bara ekki Evrópusambandssinni. Ef það er eitthvað sem er eitur í mínum beinum þá er það forræðishyggja og miðstýring og það er það sem mér hefur þótt Evrópusambandið hafa farið í mjög auknum mæli í átt að. Ég segi það líka, af því að hv. þingmaður nefndi það hér í fyrri spurningu til mín, að mér finnst ríkisstjórnin vera í blekkingaleik þegar talað er um að við séum með virka umsókn. Við getum farið inn á heimasíðu Evrópusambandsins og þar er okkur ekki að finna, ekki nafnið á landinu okkar. Það eru fjölmörg önnur ríki en ekki nafn Íslands og hefur ekki verið í langan tíma. Þess vegna þótti mér það mikill feluleikur og sýndarmennska, við skulum segja sýndarmennska, þegar hér var blásið í eitthvert partí í júlí í fyrra, og Ursula von der Leyen var dregin upp á dekk, í heimsókn til Íslands, eingöngu til að draga það upp úr hatti sínum að þessi umsókn væri enn þá virk en ekki týnd og tröllum gefin.