157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:19]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég ætla að fá að svara henni bara beint með því einfaldlega að spyrja réttu spurningarinnar. Rétta spurningin hlýtur að vera: Vilt þú ganga í Evrópusambandið, já eða nei? Þá fáum við skýra afstöðu þjóðarinnar til þess hvort fólk vilji ganga inn í sambandið, já eða nei. Ef meiri hluti þjóðarinnar segir já, þá getur þetta aðlögunarferli hafist og þá kemur það sem þingmenn meiri hlutans hér vilja alltaf kalla — þá kemur hér samningur og þá er hægt að kjósa öðru sinni um hann. Ég tel þetta vera einu réttu spurninguna.

Svo vil ég líka aðeins rétt í blálokin, af því að ég svaraði ekki hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni nógu vel: Það er jú mikil upplýsingaóreiða (Forseti hringir.) hér í gangi og erfitt að henda reiður á þessu og ég hef áhyggjur af því í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu sem á að fara fram seinna á árinu.