þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég verð að fá að segja að mér finnst þetta einkennileg nálgun hjá aðila sem ég veit að til þessa hefur örugglega setið við samningaborðið oftar en einu sinni á sinni ævi. Ætlum við að ná samningsstöðu og gera ýtrustu kröfur fyrir Ísland eða ætlum við að segja: Já, við viljum ganga inn, sama hvað? Því þá stimplar maður sig fyrst út úr umræðunni þegar maður segir og spyr þessarar spurningar: Viltu fara inn í Evrópusambandið? Og svarið er bara á reiðum höndum. Það er enginn með kristalskúlu fyrir framan sig og veit hvað okkur býðst.
Ég vil hins vegar nota tækifærið og spyrja hv. þingmann, því að ég veit að hún hefur áhyggjur af því að hér munum við sundra þjóðinni, hér verði mikil sundrung og spjótin verði hvert upp á móti öðru: Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að gera til að leggja sitt af mörkum til að takmarka þessa skautun (Forseti hringir.) til að kljúfa ekki þjóðina? Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að gera til að leggja sitt af mörkum í því?