157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:21]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni og spyr á móti: Er Samfylkingin með einhverja kristalskúlu? Vegna þess að Samfylkingin er búin að lýsa því yfir að þau vilji ganga inn í ESB (DagH: Nei.) þannig að þau hljóta að eiga þessa kristalskúlu, þetta kemur fram á heimasíðu þeirra.

Mig langar að fá að svara hv. þingmanni þegar hún spyr hvort ég hafi verið oft við samningaborð. Já, það hef ég nefnilega verið. Ég hef bæði tekið þátt í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði en ég hef líka staðið í eigin rekstri. Ég hef þurft að selja vöru. Það er ekki vænlegt til árangurs að banka upp á í einhverri sjoppu í Hlíðunum eða hvar sem er og segja bara: Heyrðu, viltu fá te, 20% afslátt og þú tekur þetta inn hérna? Þú þarft fyrst að setjast niður og segja: Viltu selja vöruna mína? Langar þig að vera með þessa vöru hér í hillunum? Í framhaldinu fer síðan fram ítarlegt samtal um kaup og kjör. Alveg eins og ég sagði áðan, (Forseti hringir.) spurðu þjóðina fyrst: Viljið þið ganga í Evrópusambandið, já eða nei? Svo skulum við hefja þetta ferli. Þú getur ekki troðið einhverri vöru upp á fólk svona.