þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Í upphafi skyldi endinn skoða er oft sagt, en í þessu tilviki veitir ekki af að skoða líka upphafið sjálft, hvernig til þessa máls var stofnað. Vinna að undirbúningi þess hófst án samráðs við þjóðina um leið og hæstv. ríkisstjórn tók við og hófst með fyrstu ferð hæstv. utanríkisráðherra til Brussel og þær hafa verið margar. Fram hefur komið að þær hafa verið átta bara á árinu 2025. Hversu margar voru þær 2024, hversu margar hafa þær orðið á þessu ári? Við vitum það ekki, en við vitum hvar áherslan liggur. Á fundum sínum með embættismönnum og öðrum í Brussel hefur hæstv. utanríkisráðherra, og eftir atvikum líka hæstv. forsætisráðherra, undirbúið ferli til að koma Íslandi inn í Evrópusambandið, beitt brögðum. Af hverju segi ég þetta? Vegna þess að þessu baktjaldamakki var haldið frá almenningi á Íslandi, frá þjóðinni sem hæstv. ríkisstjórn þykist núna vilja hlusta á og leyfa að ráða.
Íslendingar, við hér á Alþingi og þjóðin fengum fyrst að heyra af baktjaldamakkinu í erlendum fjölmiðlum sem höfðu það eftir heimildarmönnum sínum í Brussel að Ísland væri langt komið með að ganga í Evrópusambandið. Það fylgdi sögunni að fram færi þjóðaratkvæðagreiðsla í lok ágúst. Þetta hafði þá ekki verið nefnt við okkur hér, hvað þá við hv. utanríkismálanefnd. En erlendir fjölmiðlar sögðu okkur af plotti ríkisstjórnar Íslands. Þeir útskýrðu meira að segja hvað mönnum gengi til; að nota tækifærið núna á meðan væri órói í alþjóðamálum og Evrópusambandið upplifi sig í ákveðinni krísu og þyrfti á góðum fréttum að halda, til að smeygja Íslandi inn. Fá eina góða frétt fyrir Evrópusambandið, það hefði einhver enn þá áhuga á að ganga þar inn, og helst að smeygja inn um leið nokkrum mun fátækari löndum í allt annarri stöðu sem umdeilt var innan Evrópusambandsins hvort ættu að verða þar þátttakendur. Með öðrum orðum: Ríkisstjórn Íslands og ráðherrar hennar plottuðu og fóru á bak við þjóðina en þykjast nú í umbúðamennsku sinni vera að verja rétt hennar til að ákveða framhaldið. Ríkisstjórnin hafði þó ekki meiri trú á eigin þjóð en svo að hún fékk ekki að heyra af þessu fyrr en á blaðamannafundi þar sem útskýrt var að það ætti að keyra málið áfram, ekki að senda það í samráðsgátt stjórnvalda sem var einmitt búin til þannig að þjóðin fengi að hafa aðkomu að þingmálum, líta fram hjá því í þessu tilviki. Líta fram hjá utanríkismálanefnd, líta fram hjá Alþingi og líta fram hjá þjóðinni.
Hvenær áttu leikar að hefjast? Jú, í dag, strax eftir helgi. Dagskrá þingsins var rudd svo ríkisstjórnin gæti komið þessu máli sem hraðast af stað. Stjórnarandstaðan var vöruð við að ræða of mikið um málið. Hugsið ykkur það. Hugsið ykkur ósvífnina hjá ríkisstjórn sem er búin að verja mánuðum í að undirbúa plott með Evrópusambandinu og leyfir sér svo að segja að stjórnarandstaðan á Alþingi eigi að hafa sig hæga og ekki tala of mikið um þetta mál. Og hvenær á að kjósa? Það á að kjósa í sumar sem, eins og allir stjórnmálamenn vita, er ekki tími mikillar stjórnmálaumræðu hér á landi. Fólk vill yfirleitt fá frið frá pólitískum átökum, hvað þá átökum um stórpólitískt mál, á sumrin, vill fá að njóta sumarfrísins. En það er akkúrat tíminn sem ríkisstjórnin valdi. Hvers vegna? Af því að hún vill að almenningur á Íslandi taki afstöðu með sem minnstar upplýsingar. Höfum sem minnsta umræðu um Alþingi, höfum sem minnsta umræðu í samfélaginu og kjósum um sumar af því að ríkisstjórnin veit innst inni að ef sannleikurinn kemur í ljós þá verður áhuginn á þessari vegferð hennar afskaplega takmarkaður.
Hvers vegna fer ríkisstjórnin fram með þessum hætti í þessu máli? Vegna þess að hún treystir ekki þjóðinni. Ríkisstjórn Íslands treystir ekki þjóðinni. Ekki fyrir upplýsingum, ekki fyrir sannleikanum, ekki fyrir því að taka afstöðu á réttum forsendum. Það er haldið áfram með gamla leikritið sem löngu er búið að sýna fram á að hafi verið tóm þvæla. Leikritið um að kíkja í pakkann, sjá hvað er í boði, sjá hvers konar samning við fáum. Ár eftir ár, 2009–2013, reyndu fulltrúar Evrópusambandsins sjálfs furðu lostnir að útskýra það fyrir íslenskum stjórnmálamönnum að það væri ekkert til sem héti að ganga til samningaviðræðna og athuga hvað væri í boði. Ef ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu er það land búið að ákveða að það vilji inn í sambandið. Svo eindreginn hljóti viljinn vera að fulltrúar landsins séu tilbúnir til að ganga til viðræðna og útskýra í þeim aðlögunarviðræðum hvernig þeir ætli að uppfylla allar kröfur Evrópusambandsins, allar. Ekki nóg með það heldur séu menn svo ákveðnir í því að þeir ætli að ganga í sambandið að aðlögun skuli hefjast strax. Þetta er annað sem ríkisstjórnin reynir að halda leyndu frá almenningi og vonast væntanlega til að verði sem minnst umræða um hér, þ.e. að í aðildarferlinu, aðildarviðræðunum, ber umsóknarríkinu strax að byrja að aðlaga sig. Það nægir ekki bara að ræða hvað menn ætli að gera í framtíðinni; það á strax að byrja að breyta lögum. Það á strax að byrja ráða nýja embættismenn til að fylgja verkefninu eftir, það á strax að stofna nýjar stofnanir, stækka báknið til að búa landið undir aðild að Evrópusambandinu.
Það er að mínu mati forkastanlegt — ég ætla að nota það orð — að ríkisstjórn Íslands skuli koma fram við þjóðina með slíkum blekkingum, eftir að löngu er búið að fletta ofan af ruglinu, og telja að það sé endalaust hægt að plata íslensku þjóðina, m.a. með því að setja viljandi fram spurningar sem standast ekki skoðun um hlutlæga og eðlilega þjóðaratkvæðagreiðslu.
Og hvers vegna? Hvers vegna er þetta gert? Hvers vegna er farið út í þetta rugl núna þegar Evrópusambandið er á hnignunarstigi, er í endalausum vandræðum dag frá degi við sjálft sig? Hvers vegna er þá kosið að steypa íslensku þjóðinni í átök um það hvort það eigi að ganga inn í ESB? Eftir að fullveldisrétturinn hefur reynst okkur svo vel á undanförnum árum? Hann kom okkur út úr áföllum bankahrunsins og hefur skapað hér meiri hagvöxt og meiri velsæld heldur en Evrópusambandið getur látið sig dreyma um. Hvers vegna núna að leggja það til að þjóðin steypi sér í deilur um aðild að Evrópusambandinu? Það er vegna þess að ríkisstjórnin gafst upp. Hún gafst upp á verkefni sínu. Hún gafst upp á því sem hún lofaði fyrir kosningar. Hún reyndi en það virkaði ekki. Planið var ekki til staðar. Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur þó farið í hafa ekki skilað árangri heldur afturför á alla mælikvarða; verðbólgu, stöðu heimilanna og atvinnuleysi. Það rann upp fyrir þeim að dæmið væri ekki ganga upp. Þá gerast þau svo ósvífin að reyna að komast hjá umræðu um svik sín við þjóðina frá því í síðustu kosningum með því að drepa málum á dreif og ræða spurningu sem var svarað fyrir mörgum árum og ætlast svo til þess að við hér á Alþingi, herra forseti, tölum ekki málið.
Ég er rétt að byrja, herra forseti, og bið yður að skrá mig aftur á mælendaskrá.