157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:34]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fína yfirferð og fína ræðu. Það sem mig langar að gera hér að umtalsefni, og aðeins eiga orðastað við hv. þingmann um, eru þessir svokölluðu, eins og sagt er í greinargerðinni, í 5. kafla, meginhagsmunir og samningsmarkmið í viðræðunum. Það segir hér, eins og við ræddum áðan:

„Ákveði þjóðin að halda áfram viðræðum um aðild að ESB myndu stjórnvöld vinna uppfærð samningsmarkmið í víðtæku innlendu samráði sem síðan yrðu lögð fyrir Alþingi í sérstakri skýrslu.“

Mig langar aðeins að fá sýn hv. þingmanns á þetta, hvort við séum ekki að vinna þetta í öfugri röð, hvort það sé ekki svolítið skrýtið að samningsmarkmiðin komi fram eftir (Forseti hringir.) að við erum búin að ákveða að fara og halda þessum viðræðum áfram. Hefði ekki verið eðlilegra að þessi markmið væru skýr og klár áður en fólk fær tækifæri til að mynda sér skoðun um það hvort viðræðurnar eigi að halda áfram eða ekki?