157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:35]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Að sjálfsögðu hefði það verið eðlilegt. Bæði ég og hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir spurðum hæstv. ráðherra út í þetta hér áðan. Ég held að við getum alveg gefið okkur hvers vegna ríkisstjórnin vill ekki segja of mikið um málið fyrir fram, hvers vegna hún vill ekki lýsa samningsmarkmiðum sínum. Hún talar samt um að fyrir höndum séu samningaviðræður. Það er vegna þess að það á að beita salamí-aðferðinni; taka eina sneið í einu, leiða menn áfram jafnt og þétt þannig að þeir spyrni aldrei við fótum. Það að gefa fólki of miklar upplýsingar, tala hreint út um málið, heiðarlega, myndi draga úr líkunum á því að þau næðu næsta skrefi. Þetta er allt hluti af sama blekkingarleiknum. Það á að draga þjóðina eitt skref í einu inn í Evrópusambandið þangað til ekki verður aftur snúið.