þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Við hv. þingmaður erum sammála þarna. Það sem mig langar að spyrja hv. þingmann að hér í síðara andsvarinu er í þessum 5. kafla um samningsmarkmiðin. Þar er verið að tala um að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og að tryggja forræði þjóðarinnar yfir fiskveiðiauðlindinni. Ég ætla að mælast til þess að utanríkismálanefnd taki þetta til skoðunar, því að það er munur á forræði eða fullu forræði eða algjöru forræði. Er hv. þingmaður ekki sammála mér í því að þarna sé meginmunur á? Þú getur haft forræði að hluta til á einhverju en það er afdráttarlaust ef þú segist ætla að hafa fullt forræði eða algjört forræði — hvort ekki þurfi að laga þetta. Þetta er lykilmál.