157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:38]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Jú, það þarf að skerpa á þessu eins og svo mörgu öðru. Ég spurði reyndar hæstv. utanríkisráðherra að því áðan hvort hæstv. ráðherrann væri að tala um varanleg og full yfirráð yfir auðlindum. Hæstv. ráðherra sagði svo vera og vera forvitin um hvað byðist í þeim efnum. Það kom þegar í ljós í upphafi árs 2013 þegar þáverandi ríkisstjórn hætti viðræðum við Evrópusambandið. Vinstri stjórnin hin fyrsta hætti viðræðum við Evrópusambandið því að þá voru þegar komin svör við því að Evrópusambandið myndi ekki fallast á yfirráð Íslands yfir auðlindum. Svarið er komið. Nú mæta hér ráðherrar og þykjast ekkert vita (Forseti hringir.) hvað gæti komið út úr þessu. Þetta er í rauninni óboðlegt, herra forseti.