157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:39]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að lýsa yfir smá vonbrigðum með það að hér séu stjórnarandstæðingar sem eru algerlega sammála ræðumanni að raða sér á mælendaskrá til að eiga orðastað við einhvern sem þeir eru algerlega sammála. Ég vonaðist til þess að við gætum átt góða og hreinskilna umræðu og við erum nógu mörg hérna ósammála um málið til þess að við þurfum nú ekki að lengja fundinn með því að fólk tali bara hvert við annað, við fólk sem það er sammála. Ég hvet fólk til þess að leyfa eðlilegri umræðu að eiga sér stað hér.

Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að hann hefur nú verið hér lengur en í einn eða tvo vetur, um þingmál sem hann lagði einu sinni fram. Hans fyrsta mál snerist nú um leiðréttingu skulda heimilanna en annað mál hans hét: Undirbúningur mögulegrar umsóknar um aðild að Evrópusambandinu. Ef hann les þá þingsályktunartillögu þá er kannski svona smá Evrópusinnaður tónn í henni. Ég skynja að það er dálítið djúpt á honum í dag hjá hv. þingmanni, svo að vægt sé til orða tekið. Mig langar að spyrja: Var þingmaður á sínum tíma, þegar hann lagði þessa tillögu fram, að reyna að tefja fyrir því máli sem þá var eða hefur hann raunverulega skipt um skoðun á Evrópusambandinu?