þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Á árinu 2014 skilaði Hagfræðistofnun Háskóla Íslands niðurstöðu, mjög greinargóðri og áhugaverðri niðurstöðu, um þessa spurningu og þar var skýrt kveðið upp úr um það hvers eðlis aðildarumsókn að Evrópusambandinu væri og veitti kannski ekkert af á þeim tíma af því að þá hafði einmitt verið reynt að leika þennan blekkingarleik. Við fórum fram á það að fá það á hreint hvers eðlis Evrópusambandsumsókn væri, sem menn áttu svo sem að geta gefið sér, en við í ríkisstjórninni á þeim tíma vorum reiðubúin til þess að leita sérfræðiálits svo það lægi fyrir svart á hvítu. Niðurstaðan var afdráttarlaus: Umsókn um aðild að Evrópusambandinu felur það í sér að ríki vill ganga í sambandið og ætlar að aðlagast því. Þá þurfum við vonandi ekki að deila um það að það hentar ekki Íslandi.