157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:43]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Mér finnst hv. þingmaður aðeins farinn að reyna að leika leik hæstv. utanríkisráðherra og túlka upp á nýtt orð mín. Ég var aldrei mildur Evrópusambandssinni. Ég var ekki Evrópusambandssinni á nokkurn hátt nokkurn tímann. Ég kveið fyrir árinu 1992 af því að þá átti Maastricht-sáttmálinn að ganga í garð. Ástæðan fyrir því að við töldum ástæðu til að ráðast í þessa úttekt var einmitt sú að það þurfti að sýna því fólki sem talaði út í loftið, eins og núverandi ríkisstjórn leyfir sér að gera í þessum málum, svart á hvítu út á hvað umsókn um aðild að Evrópusambandinu gengi. Það var talið nauðsynlegt að fólk fengi um þetta skýrslu og það gekk eftir.

En hvað varðar spurninguna um afstöðu til atkvæðagreiðslu og svo eftir hana þá virðist hún benda til þess að hv. þingmaður átti sig enn ekki alveg á því (Forseti hringir.) hvernig þetta gengur fyrir sig. En, herra forseti, ég verð eiginlega að klára svarið við þessari spurningu í næsta andsvari ef það er leyfilegt.

(Forseti (IngÞ): Hv. þingmönnum er leyfilegt að nýta sinn ræðutíma eins og þeir kjósa.)