þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég veit ekki hvort ég á að hafa eitthvert samviskubit en hér kemur hv. þm. Pawel Bartoszek og er bara farinn á taugum eftir nokkrar mínútur í umræðunni og gerir í alvöru athugasemd við það að ég fari í andsvör við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Af hverju má ég ekki fara í andsvör við hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson? Ég vil fá skoðanir hv. þingmanns fram. Er það virkilega þannig, virðulegi forseti, að stjórnarliðar séu farnir þannig á taugum að þeir ætli núna að stýra því hver talar við hvern hér í þingsal Alþingis? Ég ætlaði að spyrja hv. þingmann um það að við búum í þeim veruleika að við vitum að stjórnarliðar vita hvað felst í að vera í Evrópusambandinu. Við vitum að fræðimennirnir, sem eru með álit um þetta, vita þetta. Hvernig eigum við að nálgast það að draga fram staðreyndirnar? (Forseti hringir.) Eða telur hv. þingmaður að við verðum í þessu alveg fram til 29. ágúst, að horfa á fólk sem við vitum að veit hvað Evrópusambandið er og hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu? Heldur hv. þingmaður að það muni reyna að vera í þessum blekkingarleik allan tímann? Og svaraðu nú.