þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég er orðinn dálítið hræddur um að það sé eiginlega sama hvað kemur í ljós, hvað bent er á, hvort sem það erum við í stjórnarandstöðunni eða Evrópusambandið sjálft sem reynir að útskýra lífið og tilveruna fyrir hv. stjórnarliðum, þá skipti það engu máli, að þeir séu bara búnir að ákveða að hlusta ekki. Þeir kjósa að lifa í sínum hliðarveruleika og láta allt annað fram hjá sér fara því að öðruvísi komast þeir ekki í gegnum daginn, öðruvísi geta þeir ekki haldið áfram á þessari vegferð, öðruvísi geta þeir ekki haldið áfram þessum blekkingarleik.
Ég skulda hv. þm. Pawel Bartoszek svar frá því áðan, um það hvort það sem ríkisstjórn gerir nú muni skuldbinda næstu ríkisstjórn. Þetta er einmitt svo lýsandi fyrir það að menn gera sér ekki grein fyrir eðli þessara mála. Þetta kom í ljós 2014 og 2015 og raunar líka 2013. Það er ekki hægt að ætlast til þess að samið sé við Evrópusambandið ef ríkisstjórn vill ekki ganga í Evrópusambandið. (Forseti hringir.) Og ég tala nú ekki um ef það er andstaða meðal þjóðarinnar við að ganga í Evrópusambandið, þá er algerlega fráleitt að einhver brella frá 2026 eigi til eilífðar að binda menn í vonlausri stöðu.