þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Mér finnst áhugavert — að vísu eru þetta aðeins ruglingsleg andsvör hérna af því að við erum báðir að tala við hv. þm. Pawel Bartoszek. En mér finnst þetta bara með ólíkindum. Ég vildi aðeins heyra sjónarmið hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem hefur tekið þennan sama slag og hefur að mörgu leyti sömu reynslu og sá sem hér stendur, verið fyrrverandi forsætisráðherra, blaðamaður, tekið þátt í alþjóðastarfi og þekkir þetta inn og út. Við vitum að stjórnarliðar vita hvað felst í þessu, þeir hafa jafnvel farið í áfanga þar sem þetta er kennt. Ég held hér á bók sem heitir Inni eða úti? eftir Auðun Arnórsson. Við vitum að þau eru að blekkja. Erum við í alvöru að horfa á það að ríkisstjórnarmeirihlutinn ætlar í fullri alvöru að reyna að keyra þetta í gegn þrátt fyrir að allir sem vilja vita viti nákvæmlega hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu? (Forseti hringir.) Allir vita það að ef þeir tala við kollega sína í Evrópu þá munu þeir ekki trúa okkur ef við segjum að umræðan sé með þessum hætti, að hér sé ríkisstjórnarmeirihluti sem segir: Ekki tala um Evrópumálin, þetta snýst ekki um að kynna sér Evrópumálin, ESB, þetta snýst um að vita meira. (Forseti hringir.) Ég vil bara spyrja hv. þingmann: Verður umræðan svona fram að þjóðaratkvæðagreiðslunni?