þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Já, ég óttast það. Með fyrirvara um að ég hafi rétt eftir ætla ég að fá, þessu til skýringar, að vitna í Solzhenitsyn, um hvernig menn gátu lifað í blekkingarheimi á tímum kommúnismans og stjórnvöld haldið sínu striki. Ég held að það hafi verið Solzhenitsyn, ég mun leiðrétta það síðar, herra forseti, ef mér skjátlast. En hann sagði: Við vitum að þeir vita og þeir vita að við vitum að þeir vita o.s.frv., samt gera þeir þetta. Það er vegna þess að stjórnin er búin að koma sér í þá stöðu að sannleikurinn, raunveruleikinn sjálfur, er orðinn ógn við áform hennar. Og þess vegna óttast ég að það sé sama hvað komi í ljós og hversu margir sérfræðingar stígi fram, menn muni einfaldlega líta fram hjá því.