þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Margur heldur mig sig, eins og sagt er, þegar hæstv. utanríkisráðherra er farinn að saka aðra um ósvífni og ber fyrir sig einhverri furðulegustu fréttaskýringu, að mér skilst, sem birst hefur í íslenskum fjölmiðlum í einhver ár. Ég sá nú þetta blað liggja hér frammi, einhverra hluta vegna er Alþingi áskrifandi að Heimildinni. Þar var mynd af mér á forsíðu og einhverjar kenningar um það að einhverjir háttsettir repúblikanar hefðu fengið styrk til að koma og hitta mig — ég veit ekki hvaða menn þetta eru, herra forseti — og annað eftir því, spunnir miklir þræðir, bullþræðir. En kannski er ástæðan fyrir því að hæstv. utanríkisráðherra vitnar einmitt í slíkt sú að það er nákvæmlega það sem ríkisstjórnin er að gera í þessum Evrópumálum.