157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:56]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F):

Virðulegur forseti. Þegar fjallað er um framtíðarsamskipti Íslands við Evrópusambandið er ekki verið að ræða eitthvert smámál í stjórnsýslu þjóðarinnar. Hér er verið að ræða meiri háttar stefnumótandi ákvörðun um stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna til lengri tíma litið. Þess vegna er jákvætt að þjóðin fái að koma að málinu og ákveði leiðina fram á við. Framsóknarflokkurinn hefur lengi lagt áherslu á að í stórum málum er varða fullveldi, auðlindir og framtíð þjóðarinnar eigi þjóðin að vera við stýrið. Það er heilbrigt og heilbrigð lýðræðisnálgun en það er líka jafnmikilvægt að þjóðin sé spurð skýrra spurninga og að hún viti sem best um hvað hún er að taka afstöðu til.

Afstaða Framsóknarflokksins er skýr. Við erum andvíg aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það byggir ekki á því að við viljum loka okkur af, þvert á móti. Við viljum vera opin, virk alþjóðasinnuð þjóð. Við viljum gott samstarf við Evrópu og umheiminn allan en við teljum að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins en innan. Fyrir því, virðulegur forseti, eru margar ástæður. Í fyrsta lagi megum við aldrei missa tök á eigin auðlindum. Fiskimiðin, orkan, vatnsauðlindirnar, jarðorkan og önnur sameiginleg verðmæti þjóðarinnar eru ekki venjuleg samningsatriði. Þetta eru grunnstoðir íslensks sjálfstæðis, byggðar, atvinnulífs og lífskjara. Í greinargerð tillögunnar eru þessi sjónarmið sjálf talin meðal grundvallarhagsmuna Íslands, þar á meðal forræði yfir vatns- og orkuauðlindum, forræði yfir fiskveiðiauðlindinni og vernd landbúnaðar og fæðuöryggis. Það sýnir hve viðkvæmt og stórt þetta mál er. En tökum dæmi: Í tillögunni er vísað til þess að meðal grundvallarhagsmuna Íslands væri að tryggja forræði þjóðarinnar yfir vatns- og orkuauðlindum og ráðstöfun þeirra. Hér er ekki talað um fullt forræði eða algert forræði. Forræði er veigaminna og opnara en orðið fullt forræði eða óskorað forræði. Ef aðeins á að tala um að tryggja forræði má spyrja hvers konar forræði, forræði að hvaða marki, forræði með hvaða undantekningum, forræði innan hvaða ramma, forræði sem stendur óskert eða forræði sem víkur að hluta fyrir regluverki, sameiginlegum ákvörðunum eða skuldbindingum. Í svona stóru máli skiptir hvert orð máli. Í öðru lagi viljum við ekki meiri miðstýringu. Framsóknarflokkurinn trúir því að ákvarðanir eigi að vera teknar sem næst fólkinu. Þetta er ekki íslensk kenning eða sjónarmið. Þetta sjónarmið er mjög ríkjandi í Evrópu. Sömuleiðis á vald ekki að færast sífellt lengra frá kjósendum inn í stærri eða fjarlægari kerfi. Ísland þarf svigrúm til að laga reglur að eigin aðstæðum, að eigin atvinnuháttum, að eigin samfélagi.

Í þriðja lagi viljum við verja sérstöðu Íslands. Við erum lítil eyþjóð í Norður-Atlantshafi með sérstaka stöðu, sérstaka hagsmuni og sérstakan veruleika. Það sem kann að henta stóru ríkjabandalagi hentar ekki sjálfkrafa litlu og sveigjanlegu samfélagi. Styrkur Íslands hefur oft legið í því að geta brugðist hratt við, staðið á eigin fótum og mótað stefnu út frá eigin aðstæðum.

Í fjórða lagi vil ég leggja áherslu á að andstaðan við aðild er ekki andstaða við samstarf. Það er engin mótsögn í því að vera alþjóðasinnuð þjóð og vilja samt ekki ganga í Evrópusambandið. Ísland getur átt náið og gott samstarf við Evrópu án þess að afsala sér meira ákvörðunarvaldi en nauðsynlegt er.

Virðulegur forseti. Það er annað í þessari tillögu sem vert er að staldra hér við sérstaklega. Spurningin sjálf er ekki eins skýr og hún ætti að vera. Já-kosturinn er afdráttarlaus, hann er virkur og felur í sér að halda aðildarviðræðunum áfram. En nei-kosturinn er orðaður þannig að kjósendur segja aðeins nei við því að halda áfram viðræðum núna. Hann segir ekki með jafnskýrum hætti að hætta eigi ferlinu, ljúka því eða fella það niður. Í því felst veikleiki. Með slíku orðalagi getur nei-niðurstaða auðveldlega verið túlkuð sem ekki núna en hugsanlega síðar. Tillagan sjálf staðfestir jafnframt að talið sé að aðildarumsókn Íslands sé enn í gildi. Nei í svona stóru máli á að þýða skýrt nei. Þjóðin á ekki að vera spurð hálfopinnar spurningar í jafn stóru máli.

Hitt atriðið varðar samningsmarkmið, sem ég hef reyndar verið að tala svolítið um hér í dag í andsvörum, bæði við hv. þingmenn og hæstv. ráðherra. Í greinargerðinni kemur fram að ef þjóðin samþykkir áframhaldandi viðræður muni stjórnvöld síðar vinna uppfærð samningsmarkmið og leggja þau fyrir Alþingi sérstaklega, í sérstakri skýrslu. Það sömuleiðis, virðulegur forseti, er veikleiki í ferlinu. Þjóðin á að vita, áður en hún kýs um framhaldið, hinar eiginlegu efnislegu viðræður, hvar Ísland dregur hina rauðu línu. Hún á að vita hvað er samningsatriði og hvað er það ekki. Hún á að vita hvað stjórnvöld telja ófrávíkjanlegt í sjávarútvegi, orkumálum, landbúnaði, byggðamálum og öðrum lykilmálum. Hvað þýðir t.d. fullt forræði? Það er ekki nóg að utanríkisráðherra skýri það út í viðtalsþáttum í útvarpinu. Þetta á ekki aðeins við um þá sem eru andvígir aðild því að þetta á líka við um þá sem vilja áframhald viðræðna. Þeir eiga líka rétt á að vita hvaða umboð Ísland ætlar að leggja á borðið og hvað samningamenn Íslands mega og mega ekki samþykkja. Þeir sem semja, virðulegur forseti, fyrir hönd Íslands þurfa líka að vita skýrt hvað þjóðin vill ekki.

Virðulegur forseti. Framsóknarflokkurinn gengur því til þessarar umræðu með tvenn skýr skilaboð: Annars vegar að það er gott og rétt að þjóðin fái að segja sitt álit í svona stóru máli. Hins vegar að okkar mat sé áfram að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins með fullt forræði yfir auðlindum okkar, með meira sjálfsákvörðunarvaldi, með minni miðstýringu, með vernd byggða, landbúnaðar og fæðuöryggis, með virku, opnu og öflugu alþjóðasamstarfi á okkar eigin forsendum. Við eigum að vera opin þjóð, virðulegur forseti, en við eigum ekki að vera afsalandi þjóð. Við eigum að horfa út á við en standa föst á okkar eigin grunni.

Virðulegur forseti. Við eigum að vera okkar eigin gæfu smiðir.