þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Það var ekki ætlun mín með þessari ræðu að sýna einhverja samúð með þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Mér þykir leiðinlegt ef ég hef komið þeim hughrifum inn hjá hv. þingmanni. Afstaða okkar er afskaplega skýr í þessu og eins og ég fór yfir í ræðunni er alveg gríðarlega margt þarna sem er mjög varhugavert og þarf að skýra betur að mínu mati. Ég held að verkefni utanríkismálanefndar sé alveg gríðarlega mikið og stórt og flókið, að fara yfir þetta og gera þetta þannig að vel geti orðið og ég hef áhyggjur af því að það náist ekki, virðulegur forseti, svo að ég segi það bara.
Það er bara hárrétt hjá hv. þingmanni, þetta er eitthvað sem verður að skýra. Ætlum við að setja einhverjar lágmarkskröfur varðandi atkvæðagreiðsluna? Mér finnst það líka eitthvað sem hæstv. ríkisstjórn þarf að svara sjálf hér. Ég meina 48 gegn 52, er það nóg? Ætla menn að fara með svona risamál í slíkum ágreiningi í gegnum þingið? Við þurfum að fá betri svör við þessu og því er hálfdapurt að ráðherrabekkurinn hér sé tómur.