157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:09]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefnir að hv. utanríkismálanefnd eigi mikið verk fyrir höndum. Samt er það þannig að málið er lagt hér fram sem þingsályktunartillaga sem heimilar ríkisstjórninni að hrinda í framkvæmd atkvæðagreiðslu á grundvelli kosningalaga. Hefði hæstv. utanríkisráðherra viljað binda betur um hnútana í þessu máli hefði auðvitað bara verið lagt fram lagafrumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu sem kvæði á um önnur skilyrði fyrir lestri á niðurstöðu slíkrar atkvæðagreiðslu. Mig langar líka að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi einhverja tilfinningu fyrir kostnaðinum — ekki af þjóðaratkvæðagreiðslunni, hún kostar 500 milljónir upp í 1 milljarð — við aðildarviðræðurnar. Er það ekki eitthvað sem þarf að liggja fyrir til að almenningur geti tekið afstöðu til þess hvort hann vilji fara í aðildarviðræður, þ.e. kostnaðurinn sem skattgreiðendur greiða, beinn kostnaður og óbeinn?