157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:10]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Þetta er hárrétt sem hv. þingmaður segir, auðvitað hefði verið betri bragur á því að koma hér fram með lagafrumvarp. En þetta er nú það sem við sitjum uppi með og við þurfum að vinna úr því. Hins vegar er það líka hárrétt, sem hv. þingmaður bendir hér á, að það er ekkert kostnaðarmat í þessu. Ég verð bara að segja það sem fulltrúi í fjárlaganefnd að þetta hefur ekki verið rætt þar. Við höfum ekki hugmynd um hvaða kostnaður mun falla til á árinu verði þetta að veruleika. Ég get ekki ímyndað mér annað en að sá kostnaður verði umtalsverður og það væri mjög fróðlegt fyrir umræðuna, fyrir þingið og fyrir okkur, að fá þessar tölur fram. Væntanlega hlýtur einhver einhvers staðar að vera búið að greina hvað þetta kostar. Ég hef ekki heyrt annað á hæstv. ráðherrum og hv. þingmönnum meiri hlutans sem hér hafa talað en að menn vilji að hér sé allt uppi á borðum. Er þetta þá ekki partur af því?