þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir ágæta ræðu. Hér hefur það dálítið verið rætt í dag hvort það sé ekki bara allt í lagi að spyrja þjóðina, að fengnum einhverjum samningspakka. Reyndar er það nú svo að áður en sá pakki er kynningarhæfur hefur talsverður hluti aðlögunar átt sér stað. Það þarf að aðlaga sig til að opna næsta flokk. En mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann, af því að hér er mikið rætt um að spyrja þjóðina, hvort það sé ekki í lagi að spyrja þjóðina — þetta er orðin einhver mantra sem dynur á okkur sem leyfum okkur að efast. Snúum þessu dæmi aðeins við: Þjóðin margspurði í aðdraganda síðustu alþingiskosninga um afstöðu þeirra sem fara með forystu í ríkisstjórn til þjóðaratkvæðagreiðslu. Þar kom ítrekað fram, til að mynda af hálfu hæstv. forsætisráðherra, það var alveg sérstaklega áberandi þar, en einnig í málflutningi hæstv. utanríkisráðherra, að það væru hér önnur verkefni sem biðu og væru brýnni og því væri þetta ekki á dagskrá næst. Því er spurningin: Þykir hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni að hér sé verið að standa við kosningaloforðin?