þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni kærlega fyrir fyrirtaks andsvar, mjög gott reyndar, og það er alveg rétt: Við erum búin að tala mikið í dag um það að við eigum ekki að óttast þjóðina. Þetta snýst náttúrlega um hvernig spurningin er borin fram og hvaða upplýsingar fólk hefur í aðdraganda þessarar atkvæðagreiðslu. Um það eru efasemdir. Það eru áhyggjurnar og eins og ég hef verið að benda á ítrekað í dag varðandi samningsmarkmiðin er afskaplega skrýtið að ætla að koma með þau eftir kosningar. Það er rosalega skrýtið, finnst mér, að vera einhvern veginn að tala um það hér og nú að við séum með einhver samningsmarkmið sem á síðan að bera fyrir utanríkismálanefnd ef við segjum já. Auðvitað á þetta að koma fyrir fram þannig að fólk viti, almenningur viti og þjóðin viti nákvæmlega hvað við erum að fara að gera.
Varðandi hitt sem hv. þingmaður spyr um, hvort það sé verið að standa við kosningaloforðin, þá þarf ekki annað en að opna Facebook hjá sér til að rifja upp hvað þar var sagt (Forseti hringir.) og við skulum orða það þannig, virðulegur forseti: Það eldist ekki vel.