157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:15]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Þau loforð, ásamt reyndar nokkrum öðrum, eldast afar illa. En það er annað sem mig langar að velta upp með hv. þingmanni, af því að hann velti upp hugtökunum varanleg og full forráð yfir auðlindunum, og það er hvernig hv. þingmaður metur það — ef við gefum okkur að niðurstaðan úr þessum spurningum, og ég tek undir það með hv. þingmanni að þar er nei-svar verulega gallað, verði sú að halda áfram með málið — að þá skulum við vera með þing og meira að segja ríkisstjórn, sem á að annast samningaviðræður eða öllu heldur aðlögunarviðræður, þar sem er ekki þingmeirihluti fyrir málinu. Ég get ekki lesið öðruvísi í þennan sal en að það sé ekki þingmeirihluti fyrir málinu. Hvert er þá umboð viðkomandi samningsaðila sem fara fyrir hönd Íslands ef þeir hafa ekki einu sinni meiri hluta þingsins á bak við sig?