157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:16]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir afbragðsgott síðara andsvar. Þetta er nefnilega stóra spurningin, þ.e. að renna yfir það að það eru einungis tveir flokkar hér á Alþingi sem hafa lýst sig áhugasama fyrir því að ganga inn í Evrópusambandið. Flokkur fólksins hefur beinlínis sagst vera á móti því þannig að það er alveg ljóst að þingmeirihlutinn er ekki fyrir hendi. En svona gerast kaupin á eyrinni.

Virðulegur forseti. Við höfum fylgst með því hér í þingsal síðustu misseri hvernig þau gerast nákvæmlega en það setur okkur upp í þessa stöðu sem við erum í núna. Það verður mjög fróðlegt að fylgjast með þeirri umræðu og það verður mjög skemmtilegt að heyra hér, og við fylgjumst mjög vel með því í þessari fyrri umræðu um þetta mál, hvað þingmenn Flokks fólksins munu segja þegar þeir koma upp í ræðupúlt Alþingis til þess að tjá sig um þetta mál.